Um síðuna
Pistlar.com er vefsíða, sem ætlað er að fjalla um málefni líðandi stundar auk þjóðfélagsmála. Einnig að vera vettvangur fyrir persónulegar skoðanir á mönnum og málefnum auk umfjöllunar hugarefna og áhugasviða. Vefsíðan var stofnuð til að fylla ákveðið tómarúm. Tómarúm gagnrýnnar umræða án ótta við hefnd eða einelti. Þess vegna var ákveðið að ganga út frá þeirri forsendu við stofnun Pistlar.com, að höfundum greina svo og bloggurum væri í sjálfsvald sett, hvort þeir skrifuðu undir nafni eða ekki. Nafnleynd sé virt og tryggð þeim, sem það vilja. En ýmsar ástæður kunna að liggja til grundvallar því, að slíkt sé bæði æskilegt og nauðsynlegt. Til dæmis þjóðfélag staða viðkomandi aðila, hvers kyns hagsmunaárekstrar o.s.frv. Aðstandendur Pistla.com lýsa því yfir, að þeir bera ekki ábyrgð á þeim skrifum, sem á síðunni birtast. Ekki heldur upplýsa hverjir þeir séu, né hvaðan þeir koma úr þjóðfélaginu. Slíkt mundi aðeins takmarka markmið og tilgang Pistla.com.
