|

Kemur vel á vondan

Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, hefur farið mikinn í starfi sínu fyrir hönd slitastjórnarinnar.  Og ekki síður sem réttargæslumaður í kynferðisbrotamálum. Miklar efasemdir hafa verið um heilindi hennar og starfsaðferðir í  þessum störfum hennar og gagnrýnisraddir háværar. Sannast hið fornkveðna. Kapp er best með forsjá.

Steinunn hefur f.h. slitastjórnar Glitnis  látið kyrrsetja allar eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um heim allan, eins og frægt er orðið.  Það var dómstóll í London, sem kvað upp úrskurðinn og tók kyrrsetningarkröfuna til greina.  Þá rekur skiptastjórnin jafnframt mál á hendur Jóni Ásgeiri og fleirum í New York til heimtu fjármuna, sem slitastjórnin telur Jón Ásgeir hafa ásamt samverkamönnum sínum, komið undan fyrir Hrun íslenska efnahagskerfisins.

Þeim, sem stefnt var í New York auk Jóns Ásgeirs eru:

Lárus Welding fyrrum forstjóri Glitnis banka og formaður áhættunefndar.

Þorsteinn Jónsson, forstjóri Vifilfells hf og áður stjórnarformaður Glitnis banka og fyrrum varaformaður FL Group.

Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons og Iceland Express og áður varaformaður FL Group.

Hannes Smárason, fyrrum forstjóri FL Group hf og stjórnarmaður í Glitni banka.

Jón Sigurðsson, fyrrum stjórnarmaður Glitnis banka ogaðstoðarforstjóri FL Group.

Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, fyrrum stjórnarmaður í Baugi og eiginkona Jóns Ásgeirs,  og

PriceWaterHouseCoopers, endurskoðendur Glitnis banka.

Jón Ásgeir var fyrrum stjórnarformaður Baugs og FL Group, en FL Group réði yfir 39% hlutafjár í Glitni banka.

Skilanefnd Glitnis og síðan slitastjórn fengu rannsóknarfyrirtækið Kroll til að rannsaka lánaviðskipti Glitnis árin fyrir Hrun.  Kroll sérhæfir sig meðal annars í því að rekja slóð fjármagnsflutninga á milli landa auk þess að sinna rannsóknum í stórum fjársvikamálum.

Jón Ásgeir Jóhannesson

Kyrrsetningarmálið  gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni virðist að mestu hafa byggst á rannsóknum Kroll.  Verulegir hnökrar hafa nú komið í ljós á rannsóknarvinnu félagsins, þar sem í ljós hefur komið, að peningar, sem eignaðir voru Jóni Ásgeiri að fjárhæð 38 milljarðar króna, voru alls ekki hans, heldur verslunarkeðjunnar Iceland Foods. En skv. rannsóknarvinnu Kroll mátti ætla, að Jón Ásgeir ætti hugsanlega þessa peninga. Slitastjórnin gaf það síðan í skyn í málarekstrinum.  Telur Jón Ásgeir, að þetta hafi ráðið miklu um það að krafa slitastjórnarinnar um kyrrsetningu eigna hans, var tekin til greina.

Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods tók nýlega af allan vafa um eignarhaldið á þessum fjármunum.  Sendi hann slitastjórn Glitnis bréf ásamt skriflegri staðfestingu frá sex breskum bönkum um að þær 202 milljónir punda, jafnvirði 38 milljarða króna, sem slitastjórnin taldi að kynnu að tilheyra Jóni Ásgeiri eða einhverjum tengdum honum, væru í raun eign Iceland Foods. Þessum skjalfestu upplýsingum hefur ekki verið hnekkt og hlýtur tilvist þeirra því að vekja upp efasemdir um ágæti vinnu slitastjórnarinnar og rannsóknarfyrirtækisins Kroll.

Áætlað er að kostnaður vegna rannsóknarvinnu Krolls sé nú kominn á sjöunda hundrað milljóna króna. Talan hefur reyndar ekki fengist staðfest opinberlega hvorki af Steinunni né öðrum í slitastjórninni. Um heildarkostnaðinn eru slitastjórnin þögul sem gröfin.

Það hefur þótt furðu sæta, að hvorki slitastjórn Glitnis né rannsóknarfyrirtækið Kroll hafi óskaða eftir skýrslu frá Jóni Ásgeiri um þá fjármuni, sem honum voru eignaðir skv. rannsóknarvinni Kroll. En rannsókn Kroll og slitastjórnarinnar mun hafa staðið fyrir um um ár. Geta það ekki talist fagleg vinnubrögð.

Mörgum þykir nóg um allan þann kostnað, sem leitt hefur af rannsóknarvinnu Krolls. Steinunn Guðbjartsdóttir réttlætir hann og heldur því fram, að rannsóknarvinna Krolls hafi skilað tvöfalldri þeirri fjárhæð í búið.  Aðeins orð hennar og staðhæfing eru fyrir þessu.  Þá hefur ekki verið sýnt frá á samhengið á milli þessarar vinnu Krolls  og þess, að þeim sé að þakka innheimtuárangur sá, sem Steinunn vísar til.

Jón Ásgeir Jóhannesson hefur nýverið tilkynnt, að hann hyggist höfðu meiðyrðamál á hendur Steinunni vegna meitra lyga í eiðsvörnum yfirlýsingum hennar fyrir dómstólum bæði í New York og London.  Jafnframt hyggst hann krefjast kyrrsetningar á eignum hennar hjá sýslumanninum í Reykjavík, þar til niðurstaða fæst í meiðyrðamálinu.  Þá hyggst Jón Ásgeir reyna enn einu sinni að áfrýja alheimskyrrsetningu eiga sinna til æðra dómstigs og hefur sótt um áfrýjunarleyfi. En dómstóll hafði áður hafnað beiðni um slíkt.

Kostnaðurnn vegna málaferlanna gegn Jóni og hinna meintu „samverkamanna“ hans er orðinn gífurlegur, bæði fyrir slitastjórnina og hina stefndu. Nemur hann hundruðum milljóna króna og á aðeins eftir að hækka.

Kostnaðurinn hlýtur að vera sérstaklega erfiður fjárhagslega fyrir hina stefndu, sem ekki hafa ótakmarkaða sjóði til að kafa í, eins og slitastjórnin virðist hafa. Haft er eftir Jóni Ásgeiri, að málskostnaður hans í málinu í London sé kominn yfir 50 milljónir króna. Talið er að málskostnaður í New York komi til með að hlaupa á tugum milljóna fyrir hvern hinna stefndu, þau, Jón Ásgeir, Pálma Haraldsson, Lárus Welding, Þorstein Jónsson, Hannes Smárason, Jón Sigurðsson, Ingibjörgu Stefaníu og PriceWaterHouseCoopers. Þá er ótalinn málskostnaðurinn hér á landi til þessa, sem er umtalsverður og á aðeins eftir að hækka.

Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis banka

Steinunn hefur ítrekað verið innt eftir því, hvað kostnaður slitastjórnarinnar sé orðin hár í heild sinni vegna allra þeirra málaferla og rannsókna, sem í gangi hafa verið og eru í gangi.  Þessa tölu hefur hún ekki viljað gefa upp, þrátt fyrir mikinn eftirgang fjölmiðla. Þeir sem til þekkja telja þennan kostnað nema núna hátt í 2000 milljónum. Já hátt í 2 milljarða króna, takk fyrir!!!  Og kröfuhafar bankans borga brúsann að fullu segir Steinunn til réttlætingar eyðslunni.  Ekki verður annað ráðið af þeim upplýsingum sem fyrir eru, að eyðslan sé stjórnlaus og eftirlit takmarkað, ef þá eitthvað fyrir hendi.

Ljóst er að fjöldi manna er að maka krókinn í þessu ferli öllu á meðan almenningur hér á landi lepur dauðann úr skel. Skammta sér óheyrilega há laun, margar milljónir í mánaðarlaun.  Er hér átt við starfsmenn slitastjórna og slitanefnda bankanna, endurskoðendur, rannsóknarmenn, skiptastjóra og fleiri.  Og hverjir úthluta svo „bitlingunum“ ?  Jú það eru jú stjórnamálamennirnir, dómarar slitastjórnir og slitanefndir.

Árni Tómasson, formaður slitanefndar Glitnis, er í þessum hópi. Og ekki má gleyma Steinunni Guðbjartsdóttur. Þetta fólk skammtar sér milljónir í mánuði hverjum. Lifir í vellystingum praktuglega.

Orðrómur gengur fjöllum hærra um klíkuskap og fjölskyldutengsl, þegar ákvarðanir eru teknar um skipun og úthlutun „bitlinga“ tengdum uppgjöri gömlu bankanna. Jafnvel hefur heyrst, að dómarar skipi vini sína og vandamenn í embætti skiptastjóra og jafnvel semji fyrirfram við hina skipuðu um hlutdeild í ágóða af starfinu. Góð búbót það!!!

Jóni Ásgeiri hefur verið borið á brýn, að hafa skotið undan aðför íbúð sinni í London með því að selja hana þann 10. maí síðastliðinn, degi áður en slitastjórn Glitnis krafðist kyrrsetningar í eignum hans úti um allan heim.

Jón Ásgeir hefur mótmælt þessum ásökunum og sagt, að sala fasteignarinnar væri hluti af eignauppgjöri á milli hans og fyrrverandi eiginkonu sinnar.  Hann heldur því fram, að fasteignin hafi verið sett í sölumeðferð hinn 10. nóvember 2009 og hún selst fljótlega í kjölfarið.  Eigendaskiptin hafi síðan verið í ferli allt að fjórum mánuðum áður en salan gekk endanlega í gegn. Það sé tilviljun einn, að salan hefði gengið í gegn daginn áður en kyrrsetningarkrafan kom fram.

Söluverð íbúðarinnar var kr. 1.5 milljónir punda eða um 290 milljónir íslenskra króna.Kröfur Slitastjórnar Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri og „samverkamönnum“ hans nema um 260 milljörðum króna. Jón Ásgeir hefur þegar greitt tæpa tvo milljarða króna eða tæplega 1% af kröfuupphæðinni. Um sé að ræða fjársvik.  En aftur á móti afglöp í trúnaðarstarfi og vitaverð vanræksla hvað varðar PriceWaterhouseCoopers. Kröfum og málsástæðum slitastjórnarinnar hefur verið mótmælt af öllu stefndu.

Steinunn segir dómkröfuna vissulega mjög háa. Óraunhæft sé að gera sér vonir um að endurheimta eitthvað í líkingu við þá upphæð. Þvi er spurt. Eru þessar aðgerðir réttlætanlegar og voru þær nauðsynlegar? Er verið að sóa peningum og mata krókinn í skjóli aðstöðu?

Raða: http://www.pistlar.com/?p=602

Skrifað af logfraedingur Á Jul 21 2010. Vistað undir Efst á baugi, Áhugavert. Þú getur fylgst með athugasemdum á RSS 2.0. You can leave a response or trackback to this entry

1 athugasemd fyrir “Kemur vel á vondan”

  1. Gunnar Gunnarsson

    Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, er margbrotleg í málum slitastjórnarinnar gegn Jóni Ásgeiri. Ég skora á Jón Ásgeir Jóhannesson að fylgja eftir yfirlýsingum sínum um að fara í skaðabótamál við Steinunni persónulega og fara fram á kyrrsetningu á eignum hennar fyrir stefnufjárhæðinni. Einnig kæra hana fyrir að ljúga fyrir dómstól i Bandaríkjunum um eignastöðu hans og ásakanir um tengingu hans við hrun Glitnis. En hún hefur látið hafa eftir sér, að bankinn hafi verið rændur innan frá. Á hún þarna við Jón Ásgeir og aðra stefndu. Viðurlög við röngum eiðsvörnum framburði er 10 ára fangelsi!!! Kominn tími til að Steinunn fái smjörþefinn af fangavist. Þar á hún heima!!!

Skrifa athugasemd

Nýlegar athugasemdir

  • Björn Jónsson: Já það er dapurlegt, þegar stjórnmálamenn þora ekki að standa við ákvarðanir sínar og láta undan...
  • Gummi: Ég þekki til þessarar glæpaklíku. Veit að þeir eiga luxusíbúð á besta stað í London og aka þar um á Rolls...
  • Gunnar Gunnarsson: Það er ótrúlegt, að þeir sem voru í gæsluvarðhaldi skyldu ekki vera ákærðir. En þeir voru...
  • Bladamadur: Þeir sem svona skrifa og haga sér eru ekki hátt skrifaðir í blaðamannastétt.
  • Bebbi: Hættum öll að kaupa DV. Það er algjört sorpblað.