|

AÐFÖRIN AÐ MUMMA Í GÖTUSMIÐJUNNI

Mummi í Götusmiðjunni

Guðmundur Týr Þórarinsson, sem almennti er kallaður „ Mummi í Götusmiðjunni“, hefur nú verið flæmdur þaðan eftir að hafa stofnað hana og byggt upp í um 20 ár.

Sérkennileg og skipulögð aðkoma Barnaverndarstofu og Braga Guðrbrandssonar, forstjóra hennar, að málinu vekja upp margar áleitnar spurningar. Þeim verður að svara og það tafarlaus, en tilraunir  Braga og Barnaverndarstofu til skýringa hafa ekki gert það.

Ekki þarf að fara djúpt ofan í sauma þessa máls til að sjá, að þarna liggja að baki ástæður, sem ekki hafa komið upp á yfirborðið.

Bragi Guðbrandsson hefur um langt skeið ríkt og drottnað sem kóngur í ríki sínu yfir öllum þeim málum og málaflokkum, sem varða barnavernd. Má þar nefna barnaverndarnefndir, stofnanir og heimili, sem vista börn o.fl.  Þá hefur Bragi gefið sig út fyrir að vera sérfræðingur í málefnum barna og tjáð sig digurbarkalega um ástand þeirra og hagi í hinum ýmsu dómsmálum.

Bragi Guðbrandsson, Barnastofu

Bragi er iðulega kallaður til af ákæruvaldinu, þegar þarf að sakfella saklausa menn. Þar eru álit hans og skýrslur teknar til greina gagnrýnislaust sem sönnunargögn af dómurum landsins.

Bragi er með puttana alls staðar og í öllu innan geirans. Verk hans eru mörg og margvísleg, ekki alltaf par fín að mati margra eða til fyrirmyndar og eftirbreyttni.  Fræg dæmi eru ákvarðanir hans um töku barna af foreldri eða foreldrum án sæmandi forsendna. Mörg þessara verka hans hafa sætt mikilli gagnrýni og ámæli.  Jafnvel í fjölmiðlum. Hins vegar fer færri sögum af myrkraverkum hans innan eigin landamæra. En nú er eitt þeirra komið upp á fyrirborðið. Aðförin að Mumma.

Upphaf árásararinnar gegn Mumma er að sögn Braga „kvörtunarbréf“ 10 starfsmanna Götusmiðjunnar, sem bréfið rituðu eftir, að Mummi hafði rekið einn starfsmann hennar. En þar væna starfsmennirnir Mumma um að hafa lagt hinn brottrekna starfsmann í einelti.

Greinilegt er, að starfsmaður þessi hefur haft lag á því að fá meðaumkun samstarfsmanna sinna vegna brottrekstursins og fengið þá í lið með sér til að klekkja á Mumma. Þá er það deginum ljósara, að hann hefur einnig átt þar vísan dyggan stuðning Braga.  Og raunar lyktar þetta, sem ráðbrugg þeirra beggja til að koma Mumma frá störfum, en Mummi, sem er enginn jámaður, hefur eflaust verið erfiður í taumi fyrir hinn drottnunarsjúka Braga. Og hefndin er sæt fyrir hin rekna starfsmenn. Eflaust búið að endurráða hann um umbuna fyrir aðstoðina við að koma Mumma frá!!!

Bragi hefur alla tíð haft það orð á sér að vera undirförull og svikull í samskiptum við þá, sem ekki lúta valdi hans skilyrðislaust og hann telur standi í vegi fyrir hagsmunum sínu. Valdatafl og hagsmunapot til eigin framdráttar eru hans ær og kýr.

Nú hefur Bragi afhent á silfurfati afkvæmi Mumma aðilum sér þóknanlegum. Samtökunum Foreldrahús Vímulausrar æsku. En þar eru innanborðs gæðingar hans og undirtyllur. Aðilar, sem skilyrðislaust lúta í blindni vilja hans og verkum. Enda eiga þeir afkomu sína og tilvist undir honum komna. Slíkt er ægivald hans.

Raða: http://www.pistlar.com/?p=597

Skrifað af Studningsmadur Á Jul 2 2010. Vistað undir Efst á baugi, Fjölmiðlar, Landsmál. Þú getur fylgst með athugasemdum á RSS 2.0. You can leave a response or trackback to this entry

2 athugasemdir fyrir “AÐFÖRIN AÐ MUMMA Í GÖTUSMIÐJUNNI”

  1. Mummi er búinn að berjast áfram til að sinna þessari köllun sinni að hjálpa ungviðinu okkar úr viðjum eiturfíknarinnar. Hann er brautryðjandi og hefur unnið feiknalega gott starf. Vonandi fáum við að njóta krafta hans áfram á sama vettvangi.

  2. Þessi Bragi Guðbrandsson er sóðakall og gömul fyllibytta, sem nærist á því að misnota vald sitt. Hann ætti að skammast sín og segja af sér vegna meðferðarinnar á Mumma. Þetta er samsæri af verstu gerð og til skammar í okkar nútíma þjóðfélagi. En víða leynist spillingin og spillingaröflin teigja anga sína viða. Bragi fær að vinna sín illvirkji óáreittur með blessun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms Sigfússonar fjármálaráðherra. En þjóðinni er flökurt.

Skrifa athugasemd

Nýlegar athugasemdir

  • Björn Jónsson: Já það er dapurlegt, þegar stjórnmálamenn þora ekki að standa við ákvarðanir sínar og láta undan...
  • Gummi: Ég þekki til þessarar glæpaklíku. Veit að þeir eiga luxusíbúð á besta stað í London og aka þar um á Rolls...
  • Gunnar Gunnarsson: Það er ótrúlegt, að þeir sem voru í gæsluvarðhaldi skyldu ekki vera ákærðir. En þeir voru...
  • Bladamadur: Þeir sem svona skrifa og haga sér eru ekki hátt skrifaðir í blaðamannastétt.
  • Bebbi: Hættum öll að kaupa DV. Það er algjört sorpblað.