Öryrki í afplánun á Litla Hrauni
Hvernig má það vera að öryrki á Litla Hrauni missir öryrkabætur við afplánun dóms frá Tryggingastofnun ríkisins. Hann getur ekki unnið þau störf sem í boði er á Litla Hrauni og hefur þar af leiðandi engar tekjur. Fjölskylda fanga, kona og börn, eru svipt þeirri framfærslu sem fanginn hafði í bætur áður en hann hóf afplánun. Þetta kemur fram í lögum að bætur skuli falla niður frá Tryggingastofnun ríkisins og er það með öllu óskiljanlegt hvers vegna öryrkar og aðstendur þeirra er refsað aukalega fram yfir aðra fanga sem geta unnið á Litla Hrauni og aflað tekan en öryrki ekki. Þingmenn vinsamlegast breytið lögunum. Börn öryrkja í fangelsi svelta þar sem framfærslan er tekin af þeim.
Raða: http://www.pistlar.com/?p=573


Þetta er mikið óréttlæti og þessu þarf að breyta. Börn og makar fanga þurfa að lifa og hafa fyrir mat og húsnæði meðan fangar afplána. Þetta er réttlætismál sem þarf að berjast fyrir