|

Fangamál

Litla-Hraun

Verð að segja frá þessu. Er fyrst og fremst fyndið sem ég heyrði frá vini mínum. Það gerðist í síðustu viku að þegar fangavörður opnaði klefana að morgni að hann kom að tveimum föngum sem sváfu saman og voru í samlokustellingum. Fangavörður ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum því að kveldi þegar klefum er lokað þá eiga allir fangar að vera í sínum klefum og það er bara einn fangi vistaður í hverjum klefa. En það merkilega gerðist að klefa fangans, sem var í næturheimsókn hjá hinum, var lokað og læst án þess að hann væri í klefanum. Fangar hafa helgið mikið af þessu atviki sérstaklega í ljósi þess að Litla Hraun á að vera öryggisfangelsi með hámarksöryggi í huga en eftirlitið er ekki meira en svo að fangar geta sofið hjá ef þeim sýnist svo. Sumir fangar sögðu af hverju skutla fangaverðir ekki dýnu heimsóknarfangans inn til vinar hans og þá gætu þeir bara verið saman og við það losnar um einn klefa. Það eru um 50 manns á bið um hvern klefa sem losnar og þvi ekkert vandamál að manna hann að nýju.

Raða: http://www.pistlar.com/?p=571

Skrifað af Skreppur Á Jun 2 2010. Vistað undir Fangelsismál, Landsmál, Pistlar úr prísund. Þú getur fylgst með athugasemdum á RSS 2.0. You can leave a response or trackback to this entry

Skrifa athugasemd

Nýlegar athugasemdir

  • Björn Jónsson: Já það er dapurlegt, þegar stjórnmálamenn þora ekki að standa við ákvarðanir sínar og láta undan...
  • Gummi: Ég þekki til þessarar glæpaklíku. Veit að þeir eiga luxusíbúð á besta stað í London og aka þar um á Rolls...
  • Gunnar Gunnarsson: Það er ótrúlegt, að þeir sem voru í gæsluvarðhaldi skyldu ekki vera ákærðir. En þeir voru...
  • Bladamadur: Þeir sem svona skrifa og haga sér eru ekki hátt skrifaðir í blaðamannastétt.
  • Bebbi: Hættum öll að kaupa DV. Það er algjört sorpblað.