Svindl og Svínarí á DV
.
Lögbrot og kennitöluflakk.
Sorpblaðið DV hefur fyrir stuttu enn og aftur skipt um kennitölu.
DV, sem Birtingur ehf gaf út til skamms tíma, skilur eftir sig sviðna jörð. Skuldir upp á hundruðir milljóna. Skuldirnar eru við opinbera aðila, viðskipabanka félagins, viðskiptamenn þess svo og þá einstaklinga, sem fengið hafa skaðabætur dæmdar sér úr hendi félagsins vegna meiðyrða og ærumeiðinga.
Viðskiptabankar DV, sem sitja uppi með skellinn, eru að því sem best er vitað, Afl Sparisjóður, sem saman stendur af Sparisjóði Siglufjarðar og Sparisjóði Skagafjarðar. Sérstaklega hefur verið bent á Sparisjóð Siglufjarðar, sem fórnarlamb fjármálaóreiðunnar á DV.
Afl Sparisjóður og Sparisjóður Ólafsfjarðar voru dótturfélög Sparisjóðs Mýrarsýslu fyrir gjaldþrot hans. Arion banki keypti allar eignir Sparisjóðs Mýrarsýlsu af þrotabúinu þannig, að líklegt má telja að tap og afskriftir skulda DV lendi einnig á Arion banka að einhverju leiti. Hversu miklar afskriftirnar verða, á hins vegar eftir að koma í ljós, þar sem Birtingur ehf er ekki enn kominn í gjaldþrotameðferð, að vitað sé.
Telja má nánast öruggt, að skuldir Birtings ehf vegna útgáfu DV fáist aldrei greiddar, þar sem gjaldþrot blasir við félaginu. Kröfuhafarnir komi til með að sitja uppi með sárt ennið bótalaust. Sérstaklega er þetta dapurlegt fyrir það fólk, sem ekki getur innheimt dæmdar miskabótakröfur sínar úr hendi félagsins.
Ekki er heldur nein von til þess, að brotaþolar níðskrifa í DV geti sótt bætur sínar úr hendi þeirra, sem illvirkin frömdu með aðför að þeim perónulega. Ástæðan sú, að flestir þeirra eru annaðhvort eignalausir eða gjaldþrota. Sannkallaðir „sómamenn“ eða hitt þó heldur!!! Sagt var í góðri bók, að menn ættu ekki að kasta steinum úr glerhúsi!!! Greinilega ekki farið eftir því á DV!!!
MannorðsMorðingjarnir og MannorðsNíðingarnir, sem starfa og hafa starfað á DV, hreykja sér síðan og hlægja að öllu saman. Axla enga ábyrgð og halda áfram uppteknum hætti óáreittir. Níðingar eins og Trausti Hafsteinsson, Ingi F. Vilhjálmsson og hinn nýji málaliði DV, KompásNíðingurinn, Jóhannes Kr. Kristjánsson. Allir eru þeir síbrotamenn á sviði ærumeiðinga, eins og einn ágætur lögmaður kallaði þessi illmenni. Eina réttlætið væri að hafa þessa Níðingana alla á bak við lás og slá. En löggjafinn hér á landi og dómstólar þurfa að taka mun harðar á MannorðsMorðum og MannorðsNíðum. Ættu slík brot að varða þungum viðurlögum. Þá ætti að fylgja slíkum miskabótum vararefsing um fangelsii, ef ekki greiddar.
Stjórnarformaður Birtings ehf er eða var til þessa Hreinn Loftsson, hæstaréttarlögmaður. Ekki er ólíklegt að búið sé að breyta því fyrirkomulagi og skipta honum út fyrir annan slíkan í augljósu skyni. En svona kallar eins og Hreinn Loftsson passa upp á það, að blettur falli ekki á hið „æruverðuga“ nafn þeirra. Þeir sjá til þess, að einhver annar sé í forsvari, þegar fallið kemur. Einhver, sem ekki er annt um mannorð sitt, og hefur engu að tapa. Eða einhver, sem er falur fyrir peninga, nema hvortveggja sé.
Þegar ársreikningur Birtings ehf er skoðaður, sést að „útgáfuréttur“ sem metin var hátt í 200 milljónir króna, er nánast eina eign félagsins. Nú hefur þessi sami útgáfuréttur verið „seldur“ til nýs hlutafélags DV ehf. Uppgefið kaupverð hefur ekki fengist gefið upp. Aftur sama gamla leynimakkið. Allar líkur eru á því, að nýjir eigendur séu leppar gömlu útgáfuklíkunnar með þá Hrein Loftsson og Jón Ásgeir í broddi fylkingar. Þeir passa upp á sitt.
En nú er aðaleigandi hins nýja félags, sagður vera Lilja Skaftadóttir, fyrrum frambjóðandi Hreyfingarinnar í síðustu alþingiskosningum. Er hún jafnframt nýr ábyrgðaraðili blaðsins. Ýmsir aðrir eru sagðir kaupendur og þar á meðal eru feðgarnir og MannorðsNíðingar, Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson.
Þessi Lilja Skaftadóttir er óskrifað blað í íslensku fjármálalífi. Örugglega dreginn upp úr fjóshaugnum af því, að engin þekkir til hennar að neinu viti hér á landi og hún sögð starfa og búa erlendis. Vera þar listaverkasali. Frábært að finna einn slíkan. Engin skattframtöl á Íslandi!!! Engin til að segja til um, hvort hún eigi bót fyrir boruna á sér eða ekki. Svindlið og svínarríið fullkomnað!!! En trúi hver, sem trúa vill. Ein fléttan til sem gengur upp eða hvað?
Rekstur DV hefur um árabil grundvallast á grófu fjármálamisferli og lögbrotum með mismunandi skósveina þeirra Hreins Loftssonar, hæstaréttarlögmanns, og Baugsmanna innanborðs. Í broddi þeirrar fylkingar hafa á mismunandi tímum verið margir „ritstjórar“. Má þar nefna meðal annars auk feðgana Reynis Traustason og Jóns Trausta, þá Sigurjón Egilsson, Mikael Torfason og Illuga Jökulsson. Allir þjóðþekktir og margdæmdir MannorðsNíðingar og MannorðMorðingjar.
Áhugavert í þessu samhengi hlýtur að teljast, að bróðir Sigurjóns Egilsssonar og fyrrum skósveinn þeirra Baugsmanna, er „ættarlaukurinn“ maður að nafni , Gunnar Smári Egilsson. Margdæmur síbrotamaður á sviði ærumeiðinga eins og aðrir fyrrnefndir svokallaðir „ritstjórar“.
Þá má nefna, að enn annar „ættarlaukurinn“, Trausti Hafsteinnsson, hefur lengi starfað á DV sem „blaðamaður“. En sá er sonur Hafsteins Egilssonar, veitingamanns, sem er bróðir þeirra Sigurjóns og Gunnars Smára Egilssona. Hafsteinn er þekktur vanskilamaður og óreiðumaður í fjármálum í veitingabransanum. Þá hefur enn annar „ættarsóminn“, Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, dóttir Sigurjóns Egilssonar, starfað sem blaðamaður á DV og sýnt þar „ snilli“ sína og innræti. Þarna sannast, að ekki verður um vilst, máltækið gamla: „Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni“. Hvílíkt samansafn ógæfufólks!!!
Það sætir furðu þeirra, sem telja sig spillingarmál og glæpaverk DV varða, að fjölmiðlar hafa lítið sem ekkert fjallað um Sukkið og Svínarríið á DV. Ekki einu sinni Morgunblaðið!!! Þrátt fyrir að hafa verið stundað fyrir opnum tjöldum mörg undanfarin ár.
Kennitöluflakkið og fjármálasvindlin hjá hinum mörgu útgáfufélögum DV teigja anga sína inn í bankana. Hafa öðlast dyggilega blessun þeirra, sem þar stjórna. Enda ekki að furða, þar sem nánast sömu aðilar hafa stjórnað DV og bönkunum, eins og BankaHrunið hefur opinberað alþjóð. En fjölmiðlaveldi þeirra Baugsfeðga, 365 miðlar, hefur tröllriðið húsum í bankakerfinu með tilheyrandi afskriftum upp á milljarða. En hin ýmsu útgáfufélög DV voru hluti 353 miðla bæði leynt eða ljóst. Almenningur í landinu situr uppi með skellinn, margra miljarða byrði. Ekki sér fyrir endan á ósköpunum.
Fjármálamisferli og lögbrot af þeirri stærðargráðu, sem útgáfufélög DV og eigendur þeirra hafa stundað undanfarin ár, geta ekki hafa viðgengist, nema einhverjir valdamiklir aðilar hafi haldið hlífiskildi yfir þessum óhæfuverkum og þeim, sem þau stunduðu. Í einhverja spotta hefur verið togað til að viðhalda sukkinu og svínaríinu.
Þorri fólks í landinu hefur gert sér ljóst í mörg ár og aldrei betur en nú eftir útgáfu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, að þeir Bónusfeðgar og samverkamenn þeirra hafa verið í sérstöku uppáhaldi hjá ákveðnum stjórnmálaöflum og stjórnmálamönnum í landinu. Enda ósparir á „styrki“ til stjórmálaflokka jafn sem stjórnmálamanna.
Þessir mútuþægnu stjórnmálamenn hafa síðan í þakklætisskyni, allir sem einn, stutt svínaríið með ráðum og dáð. Lokað augunum fyrir lögbrotunum. Lögbrotum, sem áttu sér stað beint fyrir framan augun á þeim. Ekkert var gert né aðhafst.
Öll þessi fjársvikastarfsemi hefði fyrir löngu átt að vera komið í viðamikla lögreglurannsókn og dómstólameðferð og hinir seku settir á bak við lás og slá!!! Þeir einu, sem eitthvað reyndu og þorðu að hrófla við sukkinu og Bónusveldinu, voru þeir Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og Haraldur Johannesen, ríkislögreglustjóri. En þeir máttu sín ekki gegn margnum og skefjalausum áróðri og ófrægingarherferðum gegn sér. Mútuþegarnir hins vegar klöppuðu í kór fyrir skúrkunum, lokuðu augunum og klóruðu þeim á bakinu. Greiðinn endurgoldinn.
Raða: http://www.pistlar.com/?p=541


