Lýgur Jóhanna?
Um laun Seðlabankastjóra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sór það af sér í fyrirspurnartíma á Alþingi nú í morgun þann 6. maí, að hvorki hún né nokkur annar í forsætisráðuneytinu hafi fyrirskipað Láru Júlíusdóttur, formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands, að leggja fram þá tillögu í bankaráði bankans að hækka laun Más Guðundssonar, seðlabankastjóra, um kr. 400.000.- á mánuði. En Lára hefur haldið því fram, að seðlabankastjóranum hafi verið lofað því, að upphafleg launakjör hans mundu gilda áfram, þrátt fyrir lækkun kjararáðs á launum hans í febrúarmánuði sl.
Þingmennirnir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Kári Kristjánsson voru meðal þeirra þingmanna, sem hvöttu sér hljóðs í þinginu í morgun og gengu hart fram í því að fá svör frá Jóhönnu. Er hér með skorað á þá og aðra þingmenn að beita sér frekar í málinu. Það er alvarlegt lögbrot, ef forsætisráðherra verður uppvís að því að ljúga að þingheimi og fólkinu í landinu með þessum hætti.
Í samstarfsyfirlýsingu Samfylkingar og Vinstri-grænna var sú stefna skýrt mörkuð, að engin ríkislaun yrðu hærri en laun forsætisráðherra. Það er því deginum ljósara, að þessi hækkun til seðlabankastjórans yrði í hróplegu ósamræmi við markaða stefnu ríkisstjórnarinnar.
Spurning dagsins er því: Laug forsætisráðherra að Alþingi? Og hvaðan komu fyrirmælin til Láru? Eða tók hún þetta upp hjá sjálfri sér?
Fyrirmælin hljóta að hafa komið frá einhverjum hátt settum aðila innan ríkisstjórnarinnar. Böndin berast að Jóhönnu og/eða aðilum nátengdum henni innan forsætisráðuneytisins.
Slík ákvörun sem þessi, jafn eldfim og hún er, hlýtur að hafa verið tekin af Jóhönnu sjálfri eða með vitund hennar. Annað er ótrúverðugt.
Þá eru verulegar líkur á því, að þessi ákvörun hafi einnig verið tekin í samráði við Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, eða nánustu samstarfsmenn hans, en með fullri vitund Steingríms.
Málið er allt þess eðlis, að það getur ekki hafa verið á valdi Láru Júlíusardóttur einnar að taka slíka ákvörðun sem þessa. Ákvörðun, sem er í algjörri mótsögn við sameignlega stefnu beggja ríkisstjórnarflokkanna.
Lára Júlíusdóttir, sem er þekkt í þjóðfélaginu sem starfandi lögmaður fyrir hin ýmsu verkalýðsfélög og, að vera á spenanum hjá þeim sem slík og hjá Samfylkingunni í gegnum margvísleg störf í nefndum og ráðum, tæki aldrei ákvörðun sem þessa, nema að fengnum fyrirmælum frá hæstráðanda. Til þess hefur hún of miklu að tapa.
Eins og málum er komið, er það réttmæt og eðlileg krafa íbúa þessa lánds, að Lára Júlíusdóttir upplýsi nú þegar, hver gaf henni þessi fyrrimæli. Eða þorir hún því ekki og við hvern er hún þá hrædd?
Raða: http://www.pistlar.com/?p=531

