|

Alþingismenn segi af sér.

SPILLING – MÚTUR.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir

Steinunn Valdís Óskarsdóttir

Hópur fólks hefur síðustu vikur mótmælt fyrir framan heimili þingmanna og krafist afsagnar þeirra vegna þeirrar spillingar, sem viðgengist hefur undanfarin ár meðal þingmanna þjóðarinnar.  En þingmenn hafa sumir hverjir tekið við háum fjárhæðum frá stórfyrirtækjum í landinu í nafni „kosningabaráttu og lýðræðis!!!“

Mótmælin undanfarið hafa einkum beinst gegn þingsetu Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. En áður hafði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagt af sér þingmennsku tímabundið vegna slíkra mótmæla og þrýstings úti í samfélaginu. Hins vegar er það áleit spurning, hvort tímabundin afsögn sé fullnægjandi í svona tilvikum. En látum það liggja á milli hluta að sinni.

Guðlaugur Þór Þórðarsson

Guðlaugur Þór Þórðarsson

Það vekur hneykslun og furðu almennings í landinu, að þau Steinunn Valdís og Guðlaugur Þór telja ómaklega að sér vegið og, að þau séu borin röngum sökum. Þau hafa bæði skrifað langar greinar í dagblöð og komið fram í öðrum fjölmiðlum, þar sem þau reyna allt hvað þau mega að réttlæta gjörðir sína og sannfæra fólk um, að þau eigi ekki að þurfa að segja af sér vegna „styrkveitinganna“.

Röksemdir þeirra eru meðal annars þær, að þannig hafi tíðarandinn verið, þegar „múturnar“ voru þegnar og athæfið hafi því verið fyllilega réttlætanlegt á þeim tíma, þótt nú sé það álitamál miðað við aðstæðurar í þjóðfélaginu. Hvílík sjálfblekking og forherðing!!!

Mótmælin fyrir framan heimili Steinunnar Valdísar hafa verið ítrekuð, en farið friðsamlega fram, þrátt fyrir það, að Steinunn Valdís hafi ítrekað kallað til lögreglu og reynt að siga henni á mótmælendur.  Jafnvel kallað fólkið ófriðarseggi. Þá hefur lögreglan haft í hótunum gagnvart mótmælendum og hótað að handtaka þá. Til þess hefur reyndar ekki enn komið, þótt lögreglan sé til alls vís, þegar hafðar eru í huga aðgerðir hennar í Dómhúsi Reykjavíkur fyrir stuttu síðan.

Þá hefur það vakið mikla athygli almennings í landinu, að Steinunn Valdís Óskarsdóttir hefur sem formaður allsherrjarnefndar lagt stein í götu frumvarps til laga um persónukjör, en baráttan fyrir því var eitt af þeim kröfum, sem bar hvað hæst í síðustu alþingiskosningum.  Afstaða hennar í þessu máli á sér augljósar skýringar. En það eru óvinsældir hennar. Enda fékk hún flestar útstrikanir þingmanna í síðustu alþingiskosningum!!!

Helgi Hjörvar

Helgi Hjörvar

En það eru fleiri þingmenn sem eru spilltir og þurfa að segja af sér. Nægir að sinni að nefna Helga Hjörvar, sem einnig fékk stórar fjárhæðir í mútur. Listinn er langur.

Raða: http://www.pistlar.com/?p=527

Skrifað af bankam Á May 4 2010. Vistað undir Fjölmiðlar, Hrunið, Landsmál. Þú getur fylgst með athugasemdum á RSS 2.0. You can leave a response or trackback to this entry

Skrifa athugasemd

Nýlegar athugasemdir

  • Björn Jónsson: Já það er dapurlegt, þegar stjórnmálamenn þora ekki að standa við ákvarðanir sínar og láta undan...
  • Gummi: Ég þekki til þessarar glæpaklíku. Veit að þeir eiga luxusíbúð á besta stað í London og aka þar um á Rolls...
  • Gunnar Gunnarsson: Það er ótrúlegt, að þeir sem voru í gæsluvarðhaldi skyldu ekki vera ákærðir. En þeir voru...
  • Bladamadur: Þeir sem svona skrifa og haga sér eru ekki hátt skrifaðir í blaðamannastétt.
  • Bebbi: Hættum öll að kaupa DV. Það er algjört sorpblað.