Össur og Árni Þór segi af sér!!!
EIGA ÁRNI ÞÓR OG ÖSSUR AÐ SLEPPA?
Getur verið að pólitísk staða þeirra og völd innan ríkisstjórnarinnar standi í vegi fyrir því, að salan á stofnfjárhlutum þeirra hafi ekki enn verið tekin til gagngerðrar rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, Ólafi Haukssyni, eða settum ríkissaksóknara í málum, sem tengjast bankahruninu, Birni L. Bergssyni?
Er hér um pólitíska spillingu að ræða í anda vina- og hagsmunatengsla, sem núverandi ríkisstjórn með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa gagnrýnt sem mest og háværast?
Opinber rannsókn er brýn og nauðsynleg á því, hvort þeir, Össur og Árni Þór, hafi haft aðgang að innherjaupplýsingum, sem leiddu til sölunnar. Þeir högnuðust báðir um milljónatugi. Hvorki sérstakur saksóknari né settur saksóknari efnahagsbrota virðast hafa málin á sínum borðum til rannsóknar. Skýtur þetta skökku við m.v. meðferðina, sem Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, fær vegna sölunnar á hlutafé sínu í Landsbankanum sáluga stuttu fyrir HRUN. En eignir Baldurs hafa m.a. verið kyrrsettar meðan mál hans er í rannsókn.
Þeir Össur og Árni Þór eru sagðir hafa selt stofnfjárhluti sína í SPRON fyrir háar fjárhæðir rétt áður en bréf Sparisjóðsins fóru á markað og sparisjóðurinn á hausinn í kjölfarið. Össur hefur sagtst hafa auðgast um 30 milljónir króna en Árni Þór eitthvað minna en verulega. Þá gengur sú saga fjöllum hærra, að Árni Þór hafi flutt söluhagnað sinn úr landi á erlendan bankareikning.
Á svipuðum tíma munu fjölmargir aðrir aðilar hafa selt stofnfjárhluti sína m.a. stjórnarmenn í SPRON svo og fjölskyldumeðlimir þeirra. Einnig ýmsir stjórnendur sparisjóðsins. Vakti þetta mikla reiði grandlausra kaupenda þessara stofnfjárhluta svo og annarra stofnfjáreigenda, sem síðan töpuðu öllum sínum fjárfestingum í sparisjóðnum. Er það skýlaus krafa, að mál allra þessara seljenda stofnfjárhluta verði rannsökuð líka. Allar líkur eru á því, að hér hafi verið í gangi stórfelld innherjasvik. Svik upp á hundruð milljóna.
Þess má geta að fjölskyldumeðlimir stjórenda og stjórnarmanna seldu á þessum tíma stofnfjárhluti. Áslaug Björg Viggósdóttir, eiginkona Guðmundar Haukssonar, sparisjóðsstjóra, Halldór Kolbeinsson, eiginmaður Hildar Petersen auk hennar sjálfrar. Einnig Jón G. Tómasson, fyrrv. stjórnarmaður SPRON svo og dóttir hans, sem einnig var skráð fyrir hlutum.
Árni Þór sat í stjórn SPRON í all nokkurn tíma og hefur því átt auðvelt með að afla sér innherjaupplýsinga um raunverulega fjárhagsstöðu sparisjóðsins. Að ekki sé talað um sjálfan utanríkisráðherrann, Össur Skarphéðinsson, sem í skjóli stöðu sinnar í ríkisstjórn hafði allar upplýsingar um stöðu sparisjóðsins á þessum tíma.
En það er fleira. Össur fékk framlög frá Landsbanka Íslands sáluga að fjárhæð kr. 1.500.000.- Ósvarað er í hvaða skyni. Voru þetta mútur? Hvaða fyrirgreiðslu fengu Landsbankamenn í staðinn? Þess er krafist að þetta verði einnig rannsakað ítarlega.
Þá má ekki gleyma þætti Össurar Skarphéðinssonar í Icesave málinu. En hann hefur með ráðum og dáð staðið við bakið á þeim, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigurðssyni, í því ætlunarverki þeirra að semja um afarkosti við Breta og Hollendinga og svíkja þannig land og þjóð.
Þá mun síðasta afrek Össurar vera viðtalsþáttur í BBC nýlega, þar sem hann ítrekar enn og aftur þá skoðun sína, að Íslendingar eigi að uppfylla „skyldur“ sínar í Icesavemálinu og eigi að semja á þeim nótum, sem Bretar og Hollendingar hafa krafist af Íslendingum.
Burt með Össur Skarphéðinsson af þingi!!! Burt með Árna Þór Sigurðsson af þingi. Burt með spillinguna af þingi!!!
Raða: http://www.pistlar.com/?p=513
