Lítilsvirða Lýðræðið og þjóðina
Jóhanna Sigurðardótti hefur enn og aftur sýnt það og sannað, að hún er gjörsamlega óhæf í starfi sem forsætisráðherra. Hún hefur með dæmalausri þvermóðsku og þvergirðingshætti svo mánuðum skiptir unnið markvist gegn þjóðarhagsmunum og ekki hvað síst í IceSavemálnu svokallaða með dyggum stuðningi meðreiðarsveins síns í ríkisstjórn, Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir hefur nú endanlega misst tiltrú þjóðarinnar með hinu dæmalausa útspili sínu að ákveða að mæta ekki á kjörstað og kjósa ekki í þjóðaratkvæðagreiðslunni um IceSave. Með þessu athæfi sínu hefur hún lítilsvirt lýðræðið í landinu og íslensku þjóðina. Skilaboðin, sem Jóhanna Sigurðardóttir er að senda þjóðinni og ekki hvað síst ungum Íslendingum, eru, að ekki skuli taka atkvæðisréttinn alvarlega. Hann sé eitthvað sem skipti ekki alltaf máli.
Það er ófyrirgefanlegt, að forsætisráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, skuli hafa á þessum viðsjárverðu tímum gert lítið úr þessari fyrstu þjóðaratkvæðisgreiðslu okkr Íslendinga frá lýðveldisstofnun. Það er með engu móti hægt að skilja í raun, hvað henni gekk til. Annað en gamla þvermóðskan og þvergirðingshátturinn hafi tekið völdin í hennar huga eina ferðina enn. Og að hafa látið það út úr sér, að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla hafi ekki skipt máli, er með ólíkindum!!! Og að ekkert hafi verið til að kjósa um!!! Í húfi var, hvorki meira né minna en gildi ríkisábyrgðarinnar, eins og hún var samþykkt af ríksistjórnarmeirihlutanum frá í desember!!! Ekkert var í hendi um ný samningskjör, sem þjóðin gæti sætt sig við.
Það er skylda sérhvers atkvæðabærs Íslendings að virða lýðræðið, sem við búun við. Nýta stjórnarskrábundinn kosningarétt sinn. Lýðræði er ekki gefinn hlutur í þessum heimi. Lýðræðið er munaður og fyrir því þarf að berjast. Munaður sem færri njóta en vilja.
Jóhanna Sigurðardóttir hefur einnig með orðum og athöfnum um all langt skeið stórskaðað samningsstöðu Íslands í baráttu þjóðarinnar gegn óbilgjörnum fjárkröfum Breta og Hollendinga í IceSavemálinu. En úrslit þjóðaratkvæðisgreiðslunnar voru skýr skilaboð íslensku þjóðarinnar til Breta og Hollendinga um, að þjóðin stendur saman. Stendur saman gegn kúgunaraðgerðum þeirra og lætur þær ekki yfir sig ganga. Þeir fá þau skilaboð beint í æð, að undirlægjuháttur Jóhönnu Sigurðardóttur er ekki afstaða þjóðarinnar
Skilaboð íslensku þjóðarinnar voru skýr. Bretar og Hollendingar fengu þau skilaboð, að íslenska þjóðin stendur saman og stendur betur í lappirnar en forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann. Íslenska þjóðin er ekki á hnjánum biðjandi um náð og miskunn Breta og Hollendinga. Íslenska þjóðin mun ekki sætta sig við ósanngjarnan samning þó að fjármálaráðherrann sé grátklökkur af þakklæti yfir því að Bretar og Hollendingar hafi náðarsamlegast lýst sig reiðubúna til áframhaldandi samningaviðræðna.
Þau, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, hafa svikið flest kosningaloforð sín og sérstaklega það að standa með heimilunum í landinu. Heimilin eru flest að kikna undan íbúðar- og bílalánum, sem hafa hækkað gífurlega og þar með greiðslubyrðin. Á sama tíma hafa laun almennt lækkað og atvinnuleysi margfaldast. Þau lofuðu einnig, að gagnsæi skyldi ríka í stjórnsýslunni. En veruleikinn er allt annar. Pukur og hrossakaup viðgangst þar sem aldrei fyrr. Spillingin er algjör og viðvarandi.
Almenningur þarf að horfa upp á það, að hunduðir milljarða króna ef ekki þúsundir séu afskrifaðir inn í fjármálafyrirtækjum. Fyrirtæki og einstaklingar, sem slíkra forréttinda njóta, virðast oftar en ekki vera nátengd pólitískum valdaklíkum, sem teyja arma sína inn í ríkjandi valdastétt, sem eiga allt sitt undir „góðvild“ Samfylkingar og Vinstri Grænna. En „góðvildinni“ er augljóslega ætlað stærra og mikilvægara hlutverk en að vera góðvildin ein. Hún skal tryggja hollustu og stuðning þessara afla í tilraunum ríkisstjórnarinnar til að viðhalda völdum sínum og áhrifum. Má í þessu sambandi nefna málefni Samskipa hf og Haga hf auk annarra tilvika.
Önnur spillingar- og svikamyllan, sem núverandi ríkisstjórn ber ábyrgð á, er áskrift útvaldra gæðinga til að raða sér á jötuna, sem myndast hefur í kjölfar Hrunsins. Þessum gæðingum er raðað í hin margvíslegustu embætti í skilanefndum bankanna og víðar. Þar mata þeir krókinn af einstakri græðgi og tillitsleysi í augsýn örmagna þjóðar. Þjóðar, sem ekki veit ekki sitt rjúkandi ráð gagnvart þessari spillingu, sjálf að niðurlotum komin fjárhagslega. Dæmi eru um tímakaup þessara gæðingar kr. 24.000.- per unna klukkustund, sem samsvarar miðað við 160 klukkustunda mánaðarvinnu kr. 3.840.000.- í mánaðarlaun. Á sama tíma hefur atvinnulaus maður kr. 13 0.000.- í atvinnuleysisbætur!!!
Algjört úrræðaleysi ríkir í atvinnumálum og uppbyggingu atvinnuveganna. Öllum jákvæðum hugmyndum og tilraunum til úrbóta er skotið á frest með alls kyns brellibrögðum og fyrirslætti. Má í því sambandi nefna línulögninga til Helguvíkur, virkjun Þjósár, breikkun Suðurlandsvegar og svo mætti lengi telja.
Þau, Jóhanna og Steingrímur, fara mikinn þegar þú reyna að telja þjóðinni trú um, hvað það hafi kostað þjóðina mikla peninga að hafa ekki samþykkt IceSave samninginn óbreyttan á sínum tíma, afraksturinn af samningum þeirra Svavars Gestssonar og Indriða Þorsteinssonar.
Vandamálið fram til þessa hefur verið, að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki gert trúverðuga tilraun til að semja á grundvelli íslenskra hagsmuna við Breta og Hollendinga. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ekki talað máli Íslands, hvorki hér heima né erlendis. Orsök þessa undirlægjuháttar er þjóðinni hulin ráðgáta. En í gær sagði góður meirihluti þjóðarinnar álit sitt á málflutningi forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar.
Trúnaður milli þjóðarinnar og ríkisstjórnarinnar er enginn. Hrokafull viðbrögð Jóhönnu og Steingríms í sjónvarpi eftir að fyrstu tölur birtust undirstrika að milli ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar er nú djúp og mikil gjá.
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar kalla á afsögn forsætisráðherra. Hvorki hún né fjármálaráðherra hennar njóta trausts íslensku þjóðarinnar. Þau eru umboðslaus. Þjóðin treystir þeim ekki fyrir Icesave málinu. Þau hafa sýnt að þau verðskulda ekki traust þjóðarinnar. Heimilin í landinu hafa ekki orðið vör við margboðaða skjaldborg og ríkisstjórnin er ófær um að leiða uppbyggingu atvinnulífs.
Ef Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon eru heiðvirt fólk biðjast þau lausnar strax í dag.
Raða: http://www.pistlar.com/?p=499
