Níðingsverk barnaverndarnefndar.

Níðingsverk - Bragi Guðbrandsson
Síðasta níðingsverk Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er svo ljótt og illgjarnt að manni liggur við að æla. Að níðast með slíkum hætti á 9 ára barni, eins og nefndin hefur gert undanfarna daga ætti að leiða til þess, að nefndarmenn yrðu tafarlaust reknir úr nefndinni og látnir sæta refsingum fyrir stórfelldar misþyrmingar á barninu. Í skjóli einhvers konar “fagmennsku” er þessi saklausi drengur numinn úr faðmi ömmu sinnar og settur á stofnun gegn vilja sínum og vilja ömmunnar, Helgu Elísdóttur. Konu, sem hefur alið hann, fætt og klætt, síðust ár.
Níðingsverkið er framið í skjóli þess, að móðir þessa 9 ára drengs hafi haft einhver samskipti við hann í gegnum ömmu hans, móður sína. Hvernig er hægt að koma í veg fyrir það, að fjölskylda hittist? UMGANGIST HVERT ANNAÐ. Er það allt í einu orðið eitthvað óeðlilegt og óæskilegt?
Það er verulega andlega sjúkt það fólk, sem hugsar með þessum hætti og hagar sér eins og fólkið í Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Ástæðan, sem réttlættir verknaðinn, er sú, að móðir drengsins var svipt forsjá hans vegna vímuefnaneyslu fyrir einhverju síðan. Þrátt fyrir að það liggi fyrir, að móðir drengsins hafi verið að vinna í sínum vímuefnavanda og lifað án vímuefna í all nokkurn tíma. Á slíkur harmleikur að bitna á barninu og marka það fyrir lífs tíð? Nei að sjálfssögðu ekki. Barnið á og hefur sinn RÉTT. Rétt til þess að vita, hver móðir þess er og þekkja hana, burt séð frá þeim vandamálum, sem hún hefur átt við að glíma. Að slíta barnið frá ástkærri ömmu sinni og ástríku umhverfi, og koma því í hendur vandalausra, er glæpur. GLÆPUR, sem með engu móti er hægt að réttlæga!!!
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu og yfirmaður barnaverndarnefnda í landinu, hefur lagt blessun sína yfir þetta níðingsverk Barnaverndar Reykjavíkur, þrátt fyrir að barnið hafi tvisvar sinnum strokið úr nauðungarvistinni, sem það var þvingað í. En barnið leitaði þangað, sem það það vildi vera, heima hjá ömmu sinni, þar sem það átti skjól og umhyggju. Bragi Guðbrandsson er meðsekur og ekki annað hægt að sjá af viðbrögðum hans í fjölmiðlum.
Þar lýsir hann því yfir, að það sé hægt að skjóta svona ágreiningsmálum til kærunefndar barnaverndarmála og síðan megi kæra þá málsmeðferð til Barnaverndarstofu!!! Stofnunar, þar sem hann er “æðstiprestur”. En hvað tekur slíkt ferli langan tíma? Mánuði eða ár? Og á meðan á barnið að búa við áþján og nauðung, andlega bugað og fjarri ástvinum. Hvílikt réttlæti!!! Hvílík sjálfsblekking hjá manninum. Og hverja telja menn muni verða niðurstöðuna, þegar Bragi og Co hafa fjallað um málið að endingu? Niðurstaðan yrði aldrei annað ”blessun” á níðingsverkinu og stuðningur við það. Kerfið hugsar um sína. Enda haft eftir Braga í þessu viðtali, að það sé afar alvarleg mál að fela barn fyrir yfirvöldum, sérstaklega í ljósi þess, að þarna sé verið að grípa fram fyrir hendurnar á þar til bærum aðilum. Þá séu börn aldrei tekin af heimilum, nema að undangegnum ítrekuðum leiðbeiningum um það, sem betur má fara hjá fósturforeldrum. Og Bragi heldur áfram: „Það er ekki nema það sé skellt algjörum skollaeyrum við þeim leiðbeiningum sem það er gripið til þessara úrræða.” Halda menn svo, að Bragi og Co standi með ömmunni? Nei hann er greinilega búinn að tjá sig og taka afstöðu. Stendur með sínu “fólki”.
Ég ætla að leyfa mér að hafa eftir hluta úr ” hugleiðingum” formanns Félags Ábyrgra foreldra á Akureyri, Jóhanns Kristjánssonar, sem birtist á heimasíðu félagsins um barnaverndarnefndir í landinu. Þörf lesning það. Hún er svona:
“Einfalt er að sjá að ákveðin feminísk öfl hafa yfirtekið ákveðnar stofnanir sem nefndar eru hér að ofan, en til þess að allt líti nú betur út eru oft karlmenn þar sem yfirstjórnendur. Gott dæmi um þetta er Barnaverndarstofa. Þar situr Bragi Guðbrandsson sem yfirmaður barnaverndarnefnda í landinu sem eru að mestu leyti skipaðar konum. Bragi sem forstjóri barnaverndarstofu er augljóslega áhrifalaus innan um hin miklu feminísku öfl sem stjórna þessari barnaverndarstétt Íslands, og er í raun einungis sem einhversskonar skreyting á tertunni og þar með aðeins þræll undir hælnum á hinum valdamiklu feministum sem sækja í störf barnaverndarnefnda og störf tengdum þeim.
Barnaverndaryfirvöld landsins hafa oftar en ekki orðið uppvís að nornaveiðum, dylgjum og allskyns rógburði gagnvart feðrum í umgengnismálum. Barnaverndaryfirvöld hafa með framferði sínu orðið einskonar andlit feministagrýlunnar sem hefur verið að færa sig upp á skaftið síðustu misserin og misst þann trúverðugleika sem slíkar stofnanir eiga að hafa og er það miður. Þau hafa gengið hart fram í fremstu víglínu til þess að vernda barnsmæður sem tálma umgengni, Falið og jafnvel falsað skýrslur, einnig hafa skýrslur lekið út hjá aðilum sem heyra undir barnaverndaryfirvöld.
Þótt þessi lesning eigi ekki alfarið við þetta síðasta níðingsverk Barnaverndarnefndar Reykjavíkur, þá er þarna lýst starfsháttum barnaverndarnefnda í ýmsum málum og hvernig búið sé að byggja upp stofnanaskrímsli, sem níðist á börnum og fjölskyldum þeirra í ríku mæli. Þetta er orðin business. Það er búið að koma upp valdastétt FEMÍNISTA, sem helga sér þann tilgang aðallega að viðhalda sjálfum sér og að auka völd sín og áhrif, mátt sinn og megin. Kalla síðan á her sérfræðinga, bæði sálfræðinga og félagsfræðinga, til að bakka upp og rökstyðja stefnu sína og ákvarðanir. Borgar þeim fúlgur fjár fyrir. Koma þeim á spenann og gera þessa aðila fjárhagslega háða sér til að tryggja völd sín og viðhalda blekkingarvefjum sínum gagnvart almenningi í landinu. KSÍ málið núna er enn einn FEMINISTA sóðaskapurinn, en það er önnur saga.
Breiðavíkursamtökin hafa látið þetta mál Helgu Elísdóttur og dótturson hennar til sín taka og gefið frá sér yfirlýsingu vegna þess. Samtökin hafa fordæmt Barnavernd Reykjavíkur vegna málsins.
Í ályktun samtakanna segir m.a:
„Svipting með þessum hætti hlýtur að vera ólögmæt án dómsúrskurðar, jafnvel þótt barnaverndarnefndin telji sig hafa einhver efnisrök í höndum.
Sagan sýnir að slíkar nefndir geta hæglega haft rangt fyrir sér og telja Breiðavíkursamtökin að nefndin sé að líkindum að gera nákvæmlega hið sama og gert var við Breiðavíkurbörnin og börn fleiri vistheimila fyrr á árum – farið er fram með offorsi og geðþótta og ákvarðanir teknar í blóra við lög.
Breiðavíkursamtökin fordæma þessa siðlausu ákvörðun og krefjast þess að dómsyfirvöld grípi inn í málið áður en drengurinn verður sendur út á land á morgun, miðvikudag. Jafnframt krefjast samtökin þess að svipting Barnaverndarnefndar Reykjavíkur án undangengins dómsúrskurðar verði rannsökuð ofan í kjölinn.”
Hér kemur samhljómur frá fólki, sem veit af eigin raun, hvað það er þýðir að vera tekin frá fjölskyldu og send til óviðkomandi. Kynferðislega misnotað og þrælað út eins og vinnudýrum. Ekki er langt síðan starfsmaður Barnaverndarstofu var uppvís af því að misnota kynferðislega vistmenn á stofnun úti á landi. Er ekki betra að hafa börn í faðmi fjölskyldu, ef þess er nokkur kostur? Breiðavíkurbörnin hafa aldrei boðið þess bætur að hafa verið tekin frá fjölskyldu og ástvinum. Ætlum við aldrei að læra? Burt með þessa níðinga. Burt með þessar valdastofnarnir og Feministakerlingar, sem telja sig hafa vit á öllu og vilja hafa vit fyrir öllum. Forsjárhyggjan í allri sinn dýrð!!! Eða hvað finnst ykkur kæru Íslendingar!!! ER ÞETTA ÞAÐ SEM VIÐ VILJUM?
Raða: http://www.pistlar.com/?p=265
