|

ER TRÚFRELSI Á ÍSLANDI?

Þjóðkirkjan

Á Íslandi á að ríkja trúfrelsi skv. stjórnarskránni. En er trúfrelsi í raun á Íslandi? Ljóst er, að Þjóðkirkjan er með alls konar forréttindi og fríðindi umfram aðra trúarhópa og kristna söfnuði. Dælt er í hana peningum af skattfé borgaranna, hvort sem þeir aðhyllast lúterska trú eða ekki. Um fimmtungur þjóðarinnar stendur nú utan þjóðkirkjunnar skv. nýjustu tölum Hagstofunnar. Átján prósent eru í öðrum trúfélögum og 2,9 prósent standa utan trúfélaga. Til er félag trúleysingja, VANTRÚ, sem hvetur það fólk, sem ekki vill láta fara svona með skattfé sitt, að skrá sig úr þjóðkirkjunni. Og á sama tíma að sýna í verki mótmæli sín gegn þessari þjóðfélagslegu og skattalegu þvíngun. Misrétti sem hefur viðgengist um aldir. Á Íslandi eru skráð um 30 trúfélög af hinum ýmsu stærðum og gerðum, þannig að segja má í þessum skilningi sé trúfrelsi á Íslandi. Sem sagt hægt að stofna trúfélag fyrir hvaða trúarhóp sem er, ef þessi hópur uppfyllir skilyrði, sem virðast ekki vera ströng eða flókin. En misréttið er mikið þegar kemur að því, hvernig á að fara með lögboðin gjöld sem lögð eru á vegna trúariðkanna. þar tekur þjóðkirkjan stærri og meiri skerf en aðrir trúarhópar. Þessu þarf að breyta og afnema þjóðkirkjuna. Sérhver kirkja eða trúarhópur að að reka sig sjálft og allir að fá sama skerf af kökunni. Annars verður aldrei friður um þessi mál í samfélaginu.

Raða: http://www.pistlar.com/?p=163

Skrifað af bankam Á Oct 17 2009. Vistað undir Samsafn, Trúmál. Þú getur fylgst með athugasemdum á RSS 2.0. You can leave a response or trackback to this entry

5 athugasemdir fyrir “ER TRÚFRELSI Á ÍSLANDI?”

  1. Fermingarbarn Séra Gunnars Björnssonar:

    Séra Gunnar Björnsson er einn besti og vandaðasti maður sem ég hef kynnst. Hann hugsar um söfnuð sinn og rækir öll preststörf af samviskusemi og heiðarleika. Það er eitthvað gruggugt við þessar ásakanir á hendur honum. Biskupinn hefur hlaupið á sig með þessari ákvörðun að reka séra Gunnar úr embætti. Það skaðar bara kirkjuna og tiltrú manna á henni. Það var frábært að sjá, að það eru jú prestar sem þora að standa með honum og styðja hann í þeim raunum sem hann er að ganga í gegn um. Fjölskylda hans og vinir hljóta að líða vítiskvaðir yfir þessari meðferð á honum. Það hlýtur að vera trúin á Guð sem heldur honum gangandi. Venjulegur maður væri búinn að vera með öllu og láta bugast. En séra Gunnar gengur á Guðs vegum og Guð er honum greinileg hjálparhönd. En svei því fólki sem stendur að þessari aðferð að séra Gunnari og vei þér biskup.

Skrifa athugasemd

Nýlegar athugasemdir

  • Björn Jónsson: Já það er dapurlegt, þegar stjórnmálamenn þora ekki að standa við ákvarðanir sínar og láta undan...
  • Gummi: Ég þekki til þessarar glæpaklíku. Veit að þeir eiga luxusíbúð á besta stað í London og aka þar um á Rolls...
  • Gunnar Gunnarsson: Það er ótrúlegt, að þeir sem voru í gæsluvarðhaldi skyldu ekki vera ákærðir. En þeir voru...
  • Bladamadur: Þeir sem svona skrifa og haga sér eru ekki hátt skrifaðir í blaðamannastétt.
  • Bebbi: Hættum öll að kaupa DV. Það er algjört sorpblað.