Örgustu landráðamenn
Mig langar að þakka þeim sem hafa stofnað Pistla.com. Kominn tími til að búa til vettvang, þar sem segja má skoðanir sínar umbúðarlaus og með nafnleynd ef svo ber undir. Það er nauðsynlegt fyrir Íslendinga, að þeir sem bera ábyrgð á Hruninu, verði sakfelldir og þeir fái makleg málagjöld. Dæma eins og örgustu landráðamenn. Þeir hafa með aðgerðum sínum markvisst unnið að því að skaða íslensku þjóðina og leggja sjálfstæði hennar og tilvist í verulega hættu. Allri þjóðinni blæðir fyrir aðgerðir þeirra. Í Bandaríkjunum var Maddoff dæmdur í 150 ára fangelsi vegna fjársvika, sem ekki veru nema brot af því tjóni sem landsmenn hafa orðið fyrir í Hruninu. Það yrði ævarandi hneyksli fyrir íslenskt réttarkerfi, ef þessir menn verða ekki dregnir fyrir dóma og dæmdir til þyngstu mögulegrar refsingar skv. íslenskum lögum.
Raða: http://www.pistlar.com/?p=100

