Kynlíf – Inngangur
Pistlar.com veita hér í þessum dálkaflokki öllum sem vilja möguleika á því að tjá sig um kynlíf og kynferðisleg málefni. Málefni, sem er tiltölulega lítið inn í umræðunni manna á meðal og flokkast enn sem svo kallaðra feimnismála. Eitthvað sem ekki á að ræða, nema þá helst undir rós eða undir „áhrifum“. Pistlar.com vilja bæta úr þessu og skapa hér opinskáa og einlæga umræðu um allt sem viðkemur kynlífi og kynlífshegðun. Kynlífsreynsla manna ætti að vera hverjum manni áhugaverð frásögn og til þess kjörin að opna hug manna og losa um fordóma. Legðu spilin á borðið og segðu frá þínum dýpstu leynarmálum á sviði kynlífs og hvaða skoðanir og viðhorf þú hafir á mismunandi kynhegðunar manna.
Pistlar og blogg geta verið með nafnleynd, ef menn kjósa slíkt. Þá er ekki heldur hægt að rekja skrifin þín. Þú ert fjáls og frír á Pistlum.com.
Raða: http://www.pistlar.com/?p=91

Má skrifa hérna um allt? Sama hvað er, bara ef það er kynlíf? Má segja frá því sem hefur skeð í lífi mínu? Getur einhver svarað því?
Það hlítur að vera, á þetta ekki allt að vera opið hérna á þessari síðu?