Fangelsismál – Inngangur
Pistlar.com vilja skapa umræðu í þjóðfélaginu um Fangelsismál, enda hefur ástandið í þeim málum verið ofarlega á baugi í þjóðfélagsumræðunni undanfarin misseri. Skortur á úrræðum í þessum málaflokki eru orðin að stórfelldu misrétti í þjóðfélaginu. Dæmdir menn eru að bíða í allt að 4 ár eftir því að taka út refsingu sína, þeir líða, fjölskyldur þeirra líða. Refsingar verða margfalldar að lengd við þessar kringumstæður. Eekkert virðist að gert til að bæta ástandið. Hvað er til ráða? Þarf meiri peninga inn í þennan málaflokk eða er hægt að leysa vandann með öðrum hætti. Eru fangar meðhöndlaðir af yfirvöldum, eins og ætlast má til í siðuðu þjóðfélagi? Er frumþörfum þeirra fullnægt? Tengslum þeirra við fjölskyldur og samfélagið? Hvort eru fangelsun betrun eða refsing? Að hverju á að stefna og hvaða úrræði kæmu til með að þjóna best samfélaginu? Er Fangelsismálastofnun að standa sig? Eða löggjafarvaldið? Dómsmálayfirvöld? Dómsmálaráðherra?
Skrifið um þessi mál eða bloggið!!!!! Fangar og aðrir þjóðfélagsþegnar. Segið frá reynslu ykkar og lýsið skoðunum ykkara. Látið í ykkur heyra. Nafnleynd er valkvæð og skrif ykkar órekjanleg!!! Pistlar.com er frjáls og opinn miðill. Opinn fyrir öllum tjáskiptum og skoðunum.
Ekkert Fucking Fock, takk fyrir!!!
Raða: http://www.pistlar.com/?p=89

