|

Er Jóhönnu Sigurðardóttur treystandi?

Jóhanna Sigurðardóttir

ER  Jóhönnu Sigurðardóttur treystandi til að leiða landið út úr þeim hremmingum, sem þjóðin á nú við að etja? Mér finnast margar vísbendingar um að svo sé ekki.  Jóhönnu Sigurðardóttur skortir að mínu mati flest það, sem prýða þarf þjóðarleiðtoga.  Stjórnunarhæfni,  útgeislun, talanda, kænsku, sveigjanleika og svo mætti lengi telja. Allt þetta skortir Jóhönnu og meira til. Henni hefur gjörsamlega mistekist að halda saman ríkisstjórninni . Dæmið um það er, að Ögmundur Jónasson hefur sagt sig úr henni.

Þá er ekki heldur hægt að segja, að glæsileikinn geisli af henni  í sjónvarpi  né í ræðustóli.  þar birtist óörugg, gömul og örg kelling, sem hefur allt á hornum sér.  Enda löngu komið í ljós, að hún er orðin elli kerlingu að bráð og þrjóskari en andskotinn í samræmi við það. Hafi hún bitið eitthvað í sig, verður því ekki breytt.  Hún greinilega standur og fellur með hvaða vitleysu, sem kemst inn í kollinn á henni.  Eins og vitleysan að ganga í Efnahagsbandalagið og ganga til samninga við Breta og Hollendinga í „Icesave“ málinu.

Fólk kemst ekki hjá því að sjá og upplifa, að hún er illa máli farin, þegar skrifaðrar ræðu nýtur ekki við. Þá er hún varla mælt á erlenda tungu. Og geri hún það, er það til háborinnar skammar fyrir þjóðina.  Lámarkskrafa til þjóðarleiðtoga okkar Íslendinga er að mínum dómi,  að viðkomandi  tali a.m.k. ensku. Og helst annað norðurlandamál en íslensku.   Það er ekki gæfulegt, þegar þjóðin getur ekki annað en roðnað og skammast sín niður í rass, þegar Jóhanna Sigurðardóttir opnar munninn gagnvart erlendum fjölmiðlum eða mætir fyrir hönd þjóðarinnar í útlöndum.  En það skeður þegar Jóhanna Sigurðardóttir á í hlut.  Eins og staðan er í dag, ætti Jóhanna Sigurðardóttir að segja af sér og boða til nýrra kostninga.  Það er þjóðinni fyrir bestu.

Raða: http://www.pistlar.com/?p=96

Skrifað af haskolaborgari Á Oct 13 2009. Vistað undir Efst á baugi, Hrunið, Landsmál, Samsafn. Þú getur fylgst með athugasemdum á RSS 2.0. You can leave a response or trackback to this entry

183 athugasemdir fyrir “Er Jóhönnu Sigurðardóttur treystandi?”

  1. Nú hafa Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur Sigfússon fjármálaráðherra sýnt sitt rétta andlit, eru reiðubúin að svíkja þjóðina og semja um afarkosti við Breta og Hollendinga um Icesaveskuldirnar. Þessi undangjöf er algjör niðurlæging fyrir okkur Íslandinga. Alþingi verður að hafna þessum nýju samningum, sem embættismenn f.h. ríkisstjórnarinnar hafa nú samið um við þessa fjárkúgara, Breta og Hollendinga. Ég skora á Ögmund Jónasson alþingismann og aðra alþingismenn sem höfnuðu fyrri samningum að standa við orð sín og fyrirheit og hafna líka því sem nú er verið að leggja á þeirra borð.

Skrifa athugasemd

Nýlegar athugasemdir

  • Björn Jónsson: Já það er dapurlegt, þegar stjórnmálamenn þora ekki að standa við ákvarðanir sínar og láta undan...
  • Gummi: Ég þekki til þessarar glæpaklíku. Veit að þeir eiga luxusíbúð á besta stað í London og aka þar um á Rolls...
  • Gunnar Gunnarsson: Það er ótrúlegt, að þeir sem voru í gæsluvarðhaldi skyldu ekki vera ákærðir. En þeir voru...
  • Bladamadur: Þeir sem svona skrifa og haga sér eru ekki hátt skrifaðir í blaðamannastétt.
  • Bebbi: Hættum öll að kaupa DV. Það er algjört sorpblað.